12. janúar 2010 |
Vítamín og þorramatur á blótinu í Reykhólahreppi
Þorrablótið í Reykhólahreppi 2010 verður haldið í íþróttahúsinu á Reykhólum laugardagskvöldið 23. janúar, fyrsta laugardaginn í þorra. Á borðum verður úrvals þorramatur að hætti Árna í Bjarkalundi en hljómsveitin Vítamín sér um fjörið. Húsið verður opnað kl. 20 en borðhald hefst kl. 20.30. Aldurstakmark er 16 ár. Forsala miða verður í anddyri íþróttahússins fimmtudaginn 21. janúar kl. 18-20.
Miðaverð í forsölu er kr. 4.900 en eftir fimmtudag 21. janúar er það kr. 5.500. Ef eingöngu er farið á dansleikinn er miðaverðið kr. 2.500.
Miðapantanir berist í síðasta lagi fimmtudaginn 21. janúar til Bjarna í síma 865 1841 eða Rannveigar í síma 894 1227 og 434 7701.
Minnt skal á hugmyndakassa þorrablótsins í versluninni Hólakaupum.
Smellið á auglýsinguna til að stækka hana.