Tenglar

2. september 2010 |

Vonandi koma fleiri börn á næsta „opna fjós“

1 af 2
Fjölskyldan í Mýrartungu í Reykhólasveit þakkar þeim sem mættu á „opið fjós“ á byggðarhátíðinni um helgina kærlega fyrir komuna. Allgóður hópur kom í heimsókn þegar saman er talið en í tölvuskeyti frá Mýrartungu segir að það hefði verið skemmtilegra að sjá fleiri börn. „En það verður bara vonandi næst.“ Meðfylgjandi myndir fylgdu skeytinu - að vísu voru líka kettir með hundinum á myndinni en þeir voru eitthvað þokukenndir og þess vegna klipptir burt.

 

Undir skrifuðu með bestu kveðjum þau Erla, Jens, Kristbjörg, Kári, Þóra, Ísabella og Elmar.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31