Tenglar

29. maí 2011 |

Vortónleikar Norðurljósa á Hólmavík

Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík.
Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík.
Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík heldur vortónleika sína í Hólmavíkurkirkju í dag, sunnudag, og hefjast þeir kl. 16. Efnisskráin er fjölbreytt að vanda. Kórinn mun meðal annars flytja lög eftir Jónas og Jón Múla Árnasyni, Magnús Eiríksson og Guðmund Jónsson, sem Kjartan Valdimarsson píanóleikari útsetti sérstaklega fyrir kórinn. Auk þess eru á efnisskránni lög eftir Bubba Morthens, KK, Egil Ólafsson, Trausta Bjarnason og fleiri. Stjórnandi kórsins er Sigríður Óladóttir og undirleikarar Viðar Guðmundsson og Gunnlaugur Bjarnason.

 

Kaffihlaðborð fyrir tónleikagesti verður í Félagsheimilinu á Hólmavík að tónleikum loknum.

 

Aðgangseyrir er kr. 2.000 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir börn 6-14 ára. Athygli er vakin á því að ekki er posi á staðnum.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31