30. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is
Vortónleikar Norðurljósa á Hólmavík
Kvennakórinn Norðurljós á Hólmavík heldur sína árlegu vortónleika í Hólmavíkurkirkju á morgun, miðvikudaginn 1. maí, og hefjast þeir kl. 14. Undirleikarar eru Viðar Guðmundsson og Gunnlaugur Bjarnason. Stjórnandi er Sigríður Óladóttir. Innifalið í miðaverði er kaffihlaðborð í Félagsheimilinu á Hólmavík.
Miðaverð er kr. 2.000 fyrir fullorðna og kr. 1.000 fyrir börn. Tekið er við kortagreiðslum.