Ýmsar hliðar á menningartengdri ferðaþjónustu
Málþing um menningartengda ferðaþjónustu verður haldið á Restaurant Galdri á Hólmavík á morgun, fimmtudag, og hefst kl. 12.10. Þar láta bæði heimamenn á Ströndum og nemendur í hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands ljós sitt skína og segja frá margvíslegum verkefnum. Þingið er haldið í tengslum við heimsókn háskólanema í námskeiðinu Menningartengd ferðaþjónusta.
Meðal fyrirlesara eru Skúli Gautason menningarfulltrúi Vestfjarða sem fjallar um uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Vestfjörðum, Esther Ösp Valdimardóttir mannfræðingur og tómstundafulltrúi Strandabyggðar sem fjallar um bæjarhátíðina Hamingjudaga og fleiri hátíðahöld í Strandabyggð, Hafdís Sturlaugsdóttir landnýtingarfræðingur sem fjallar um menningarverkefni á vegum Náttúrustofu Vestfjarða og Dagrún Ósk Jónsdóttir þjóðfræðingur sem fjallar um Náttúrubarnaskólann. Einnig kynna nemendur í hagnýtri menningarmiðlun verkefni sem þeir hafa unnið.
Málþingið er opið öllum sem áhuga hafa.
Rannsóknasetur HÍ á Ströndum – Þjóðfræðistofa stendur fyrir málþinginu og móttöku hópsins í samvinnu við Strandagaldur og Sauðfjársetur á Ströndum.