Zoom - fundur um orkumál á Vestfjörðum
Starfshópur um orkumál á Vestfjörðum ætlaði að halda íbúafund um orkumál á Hólmavík í dag kl. 18:00, en vegna veðurs og ófærðar verður Zoom fundur og hér er hlekkurinn á hann: https://us02web.zoom.us/j/84519623640
Orkumál á Vestfjörðum njóta ákveðinnar sérstöðu og hafa gert um nokkurt skeið. Starfshópur um orkumál á Vestfjörðum, sem starfar í umboði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, fékk það verkefni að skoða orkumál í fjórðungnum og koma með tillögur til úrbóta. Var við vinnuna litið til stöðu mála í flutningskerfi raforku, dreifikerfi raforku og möguleikum til orkuvinnslu á svæðinu og hvernig það fellur að áherslum úr orkustefnu um orkuskipti og afhendingaröryggi á landsvísu.
Starfshópurinn hefur nú unnið drög að tillögum til úrbóta og vill ræða drögin við íbúa Vestfjarða áður en hann lýkur störfum.