Tenglar

24. febrúar 2012 |

Gáfu Reykhólaskóla eggjasafn - mjög gamalt að stofni

Tumi og Svana og Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri við eggjarekkann.
Tumi og Svana og Júlía Guðjónsdóttir skólastjóri við eggjarekkann.
1 af 2

Hjónin Tómas Sigurgeirsson og Svanhildur Sigurðardóttir, búendur á Reykhólum, hafa gefið Reykhólaskóla eggjasafn sem komið hefur verið fyrir í rekka í matsal skólans. Um er að ræða egg rúmlega sjötíu fuglategunda. Geta má þess, að í fuglaríkinu mikla í og við Breiðafjörð eru taldar verpa að staðaldri 57 tegundir fugla. Stofninn í safninu er frá afa Tómasar og alnafna og elstu eggin meira en sjötíu ára gömul eða frá því um 1940. Hinu hefur Tómas yngri (Tumi) bætt við smátt og smátt.

 

„Það er betra að hafa þetta þarna en ofan í kössum þar sem enginn sér“, segir Tumi. „Svo fannst okkur líka að við ættum að gera eitthvað sérstakt í tilefni þess að við Svana vorum núna loksins að kaupa Reykhólajörðina.“

 

Tómas Sigurgeirsson eldri var Þingeyingur að uppruna en kom ungur að Miðhúsum í Reykhólasveit og var þar fyrst vinnumaður og síðan bóndi ásamt Steinunni Hjálmarsdóttur eiginkonu sinni. Eftir búskap í Miðhúsum í áratug fluttust þau ásamt mörgum börnum spölinn litla að Reykhólum árið 1939.

 

Tómas eldri lést árið 1987, liðlega hálfníræður. Í dag, þann 24. febrúar, eru 25 ár frá því að hann var jarðsettur í kirkjugarðinum á Reykhólum, rétt við húsið á Hólnum þar sem hann og fjölskylda hans áttu heima. Steinunn lifði mann sinn í rúm þrjú ár.

 

Matsalur Reykhólaskóla er oft notaður fyrir fundi og samkomur af ýmsu tagi. Þannig má segja að eggjasafnið sem hulið var í kössum sé núna í alfaraleið. Rekkann fyrir eggin smíðaði Eiríkur Kristjánsson húsasmiður á Reykhólum, sem jafnframt er formaður skólanefndar.

 

Forsvarsmenn Reykhólaskóla og Reykhólahrepps vilja færa Tuma og Svönu innilegar þakkir fyrir gjöfina og þann hlýhug sem henni fylgir.

 

Ítarefni:

  • Tómas Sigurgeirsson (1902-1987) - minningargreinar hér og hér
  • Með þessari frétt má sjá mynd af Steinunni Hjálmarsdóttur við þvott í Grettislauginni gömlu á Reykhólum um 1940 eða rétt um það leyti sem Tómas maður hennar byrjaði að safna eggjunum
  • Fuglatalning Reykhólamanna

 

Athugasemdir

Þrymur Sveinsson, fstudagur 24 febrar kl: 20:56

Höfðingleg gjöf!

Björk Stefánsdóttir, fstudagur 24 febrar kl: 22:40

Frábært framtak, langafi væri örugglega stoltur af þessu;-)

Kristín I. Tómasdóttir, eldri, fstudagur 24 febrar kl: 22:54

Tumi minn!
Það er frábært að sjá eggjasafnið ykkar afa þíns þarna í skólanum.
Flott hjá ykkur Svönu að gera þetta.
Ég man hvað pabbi var flinkur að blása úr eggjum fyrir okkur Sigurgeir þegar við vorum lítil. En þau sem við fengum eru örugglega ekki í safninu.

Dísa, laugardagur 25 febrar kl: 19:26

Elsku bestu foreldrar mínir, einstaklega falleg gjöf frá ykkur. Er mjög stolt af ykkur :-)

Einar Sigurðsson, laugardagur 25 febrar kl: 20:02

Frábært framtak sem aðrir ættu að taka sér til fyrirmyndar.

Sigríður Jóna Jónsdóttir, sunnudagur 26 febrar kl: 11:27

Glæsileg gjöf. Þetta þarf ég að skoða í næstu heimsókn.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31