Tenglar

4. maí 2012 |

Harmonikudagurinn: Tónleikar á Reykhólum

Haldið verður upp á Harmonikudaginn 2012 í sal Barmahlíðar á Reykhólum á morgun, laugardag, og hefst fagnaðurinn kl. 15. Þar munu félagar í Harmonikufélaginu Nikkólínu ásamt upprennandi harmonikuleikurum spila nokkur lög og Vinafélag Barmahlíðar selur kaffi og vöfflur á 500 krónur. Þó að meirihluti félagsfólksins í Nikkólínu sé búsettur sunnan Gilsfjarðar var ákveðið að spila á Reykhólum að þessu sinni. „Við vonum að það mælist vel fyrir,“ segir Melkorka Benediktsdóttir á Vígholtsstöðum í Dölum, félagi í Nikkólínu.

 

Harmonikudagurinn er haldinn ár hvert að frumkvæði Sambands íslenskra harmonikuunnenda, sem hvetur harmonikufélögin hvert á sínu svæði til að kynna starfsemi sína og hafa ungt fólk  með eins og unnt er.

 

29. okt. 2011 Nikkólína 30 ára

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31