Starfsmann vantar við Grettislaug
Starfsmann vantar við Grettislaug til að taka að sér eftirfarandi vaktir: Fimmtudaga og aðra hverja helgi, möguleiki á meiri vinnu í sumar.
Sjá nánar í Laus störf, hér til vinstri
Starfsmann vantar við Grettislaug til að taka að sér eftirfarandi vaktir: Fimmtudaga og aðra hverja helgi, möguleiki á meiri vinnu í sumar.
Sjá nánar í Laus störf, hér til vinstri
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir verður með förðunarnámskeið í Reykhólaskóla
Hvenær? Fimmtudaginn 1. febrúar
Hvar? Bekkjarstofa unglingastigs í grunnskólanum
Hvað kostar? 3.000 kr (ekki posi)
ATH skráning óþörf!
...
Nýverið var ráðið í stöðu framkvæmdastjóra nýstofnaðrar Vestfjarðastofu, og var Sigríður Ó. Kristjánsdóttir ráðin.
Hún var um árabil verkefnastjóri við starfsstöð Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á Ísafirði.
...
Auglýsing um tillögu að Svæðisskipulagi Dala, Reykhóla og Stranda 2018 - 2030
Svæðisskipulagsnefnd Dalabyggðar, Reykhólahrepps og Strandabyggðar auglýsir, skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að svæðisskipulagi sveitarfélaganna. Í tillögunni, sem samanstendur af greinargerð auk umhverfisskýrslu, er sett fram sameiginleg framtíðarsýn á þróun landbúnaðar, sjávarnytja og ferðaþjónustu í þeim tilgangi að styrkja atvinnulíf og byggð.
...
Á okkar ágætu Báta- og hlunnindasýningu á Reykhólum vantar góðan framkvæmdastjóra. Harpa Eiríksdóttir hætti nú um síðastliðin áramót.
Starfsemin hefur fram til þessa mótast í höndum Hörpu og hefur hún verið dugleg við að brydda upp á nýjungum sem ná bæði heimamönnum og ferðamönnum inn á sýninguna, upplýsa um afþreyingu og ferðir á öllum Vestfjörðum og nýta samkomuhúsið til skemmtana og annarra uppákoma.
...Nú eru komnar á vefinn uppfærðar gjaldskrár stofnana sveitarfélagsins. Einnig eru komnar inn svipmyndir frá síðasta ári.
Þá er komið inn tenglasafn undir valmynd, vinstra megin á síðunni sem heitir Vestfjarðavegur (60) þar sem meiningin er að safna á einn stað umsögnum og gögnum um vegstæðið í Gufsunni.
...Stefnt er að því að ræsa vél Baldurs á morgun laugardag og klára stillingar vinnu og sigla prufusiglingu á sunnudag.
Stefnt á að sigla skv. áætlun 22. Janúar.