Arnarsetrið kynnt á aðalfundi F.V. á Reykhólum
Meira
Borgarafundur var haldinn á Reykhólum í gær, þar sem kynnt var aðalskipulagstillaga fyrir Reykhólahrepp. Starfsmenn Landmótunar hf., þeir Yngvi Þór Loftsson og Óskar Örn Gunnarsson, kynntu fyrir fundarmönnum tillöguna eins og hún er í dag. Þeir sem áhuga hafa geta komið á skrifstofu Reykhólahrepps og skoðað tillöguna og komið með athugasemdir ef þeir sjá ástæðu til. Næstu skref í vinnuferlinu er að á næsta hreppsnefndarfundi verður tillagan tekin til skoðunar og endanlega samþykkt frá sveitarstjórn. Þá tekur Skipulagsstofnun við og yfirfer tillöguna áður en hún fer í endanlega auglýsingu, en þá er enn sex vikna frestur til að koma með ábendingar og leiðréttingar.
Saga Film óskar eftir fólki á öllum aldri, af öllum stærðum og gerðum. Um er að ræða ýmis lítil hlutverk og aukahlutverk í sjónvarpsþáttaröðinni Dagvaktinni, sem við erum í þann veginn að fara að taka upp í Hótel Bjarkalundi. Tökur verða á tímabilinu 14. apríl til 20. maí. Í tilefni af því ætlum við að bjóða ykkur sem hafið áhuga, að mæta í Bjarkalund föstudaginn 4. apríl einhvern tíma milli kl. 14 og 18 og hitta okkur. Einnig er hægt að senda okkur upplýsingar með mynd á aukaleikarar@sagafilm.is
Í dag, föstudaginn 28. mars 2008, var kveikt á nýjum sendi frá Vodafone við Hótel Bjarkalund í Reykhólasveit, sem þýðir betra fjarskiptasamband í næsta nágrenni við hótelið. Sendinum var komið fyrir til bráðabirgða við Bjarkalund, en vonir standa til að varanlegur sendir verði kominn upp á Hofstaðaháls við Þorskafjörð og nær þá að miðla yfir stærra svæði. Þetta er hluti GSM-útboði 2, sem Vodafone fékk og verður það opið fyrir alla, bæði notendur Vodafone og Símans.
Þar með er komið GSM-samband á þessu svæði Reykhólasveitar, en nýlega fékk Árni Sigurpálsson hótelstjóri á Bjarkalundi einnig ADSL-tengingu, sem er stórbót fyrir rekstur hótelsins, sem áður þurfti að notast við rándýra ISDN-tengingu bæði fyrir bensíndælur og tölvur. Á liðnum sumrum kom það iðulega fyrir að gestir sneru frá og hættu við að gista á Hótel Bjarkalundi þegar þeir uppgötvuðu að þar var hvorki GSM-samband né ADSL-nettenging.
Á næstu dögum verður komið á langdrægara sambandi frá sendi í Flatey, sem mun stórbæta fjarskiptasamband við Breiðafjörðinn. Árni Sigurpálsson hótelhaldari í Bjarkalundi gerir því skóna að það tengist því kannski að upptökur séu að byrja á grínþáttunum Dagvaktinni, að verið sé að net- og GSM-væða svæðið. Í fyrrasumar var einmitt Flatey á Breiðafirði GSM-vædd áður en upptökur á kvikmyndinni Brúðgumanum hófust.
Á fundi sínum þann 14. febrúar 2008 ákvað hreppsnefnd Reykhólahrepps að fá álit íbúa á þeim þremur nöfnum sem hreppsnefndin valdi úr þeim tillögum sem bárust um nýtt nafn á Tilraunastöðina. Þessi þrjú nöfn eru:
Nú óskar Reykhólahreppur eftir því að íbúar velji það nafn sem þeim líst best á með því að krossa við eitt nafnanna hér að ofan og senda okkur fyrir 7. apríl 2008. Vinsamlegast látið nafn og heimilisfang ykkar fylgja.
Nafn: ___________________________________
Heimili: ________________________________
Senda má tölvupóst með umbeðnum upplýsingum á netfangið sveitarstjori@reykholar.is