Laus störf hjá Reykhólahreppi
Við leikskóladeild Reykhólaskóla vantar leikskólakennara í 100% starf.
Einnig er auglýst starf sundlaugarvarðar með vaktstjórn. Sjá nánar undir laus störf hér til vinstri á síðunni.
Við leikskóladeild Reykhólaskóla vantar leikskólakennara í 100% starf.
Einnig er auglýst starf sundlaugarvarðar með vaktstjórn. Sjá nánar undir laus störf hér til vinstri á síðunni.
Stjórn Vestfjarðastofu ses. auglýsir eftir framkvæmdastjóra til þess að leiða starfsemi Vestfjarðastofu sem tók til starfa 1. desember sl. Vestfjarðastofa varð til við sameiningu verkefna sem áður heyrðu undir Fjórðungssamband Vestfirðinga og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hf.
Sjá tilkynningar hér neðst á síðunni.
Aðalskipulagsbreyting felst í breyttri legu á Vestfjarðavegi (60) í sveitarfélaginu og nýrra efnistökusvæða.
Breytingin fjallar um leiðrétta veglínu á Vestfjarðavegi milli Bjarkalundar og Skálaness miðað við endurupptekið umhverfismat ásamt nýjum efnistökusvæðum, en veglína hefur breyst á nokkrum stöðum frá gildandi aðalskipulagi.
Vinnslutillögurnar má sjá í tilkynningar hér neðst á síðunni, og hér.
...Hin árlega fullveldishátíð Reykhólaskóla verður haldin föstudaginn 1. desember í íþróttasal Reykhólaskóla.
opnað kl. 19:00 og er mjög æskilegt að nemendur mæti þá. Sýning hefst kl. 19:30 og skemmtun lýkur kl. 22:00.
Foreldrafélag Reykhólaskóla sér um kaffiveitingar
Miðaverð:
Fullorðnir 1500 kr.
Börn 6 – 16 ára 500 kr.
Börn 5 ára og yngri frítt
Hlökkum til að sjá ykkur
Nemendur og starfsfólk Reykhólaskóla
Sveitarstjórn Reykhólahrepps gerir þá skýru kröfu til Vegagerðarinnar, að hún tryggi eðlilegar samgöngur og þjónustu við íbúa Flateyjar á meðan á viðgerð á flóabátnum Baldri stendur yfir.
Uppfært 29.11.2017
Vegagerðin hefur tilkynnt Reykhólahreppi að samið hafi verið við Sæferðir að sigla skipinu Særúnu tvisvar í viku, ferð í Flatey á meðan á viðgerð á Flóabátnum Baldri stendur yfir.
...
Föstudaginn 1. desember næstkomandi verður breyttur afgreiðslutími í lauginni vegna Lýðveldishátíðar leikskóla- og skólabarna í Reykhólaskóla.
Hið árlega fullveldiskaffi Reykhólaskóla verður haldið föstudaginn 1. desember í íþróttasal Reykhólaskóla.
...Um nokkurt skeið hefur staðið yfir undirbúningur að stofnun Vestfjarðastofu ses. Vestfjarðastofa mun taka að sér að reka og þróa áfram þau verkefni sem Fjórðungssamband Vestfirðinga og Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða hafa sinnt hingað til.
...