Aðalfundur ATVEST 22. júní
Aðalfundur ATVEST verður haldinn 22. júní á Ísafirði kl 13.30. Athugið að áður verður á Hótel Ísafirði kynningarfundur með hádegissnarli, kl 12. Stefnumótun um Vestfjarðastofu verður kynnt á þeim fundi.
Aðalfundur ATVEST verður haldinn 22. júní á Ísafirði kl 13.30. Athugið að áður verður á Hótel Ísafirði kynningarfundur með hádegissnarli, kl 12. Stefnumótun um Vestfjarðastofu verður kynnt á þeim fundi.
Kvennahlaupið fer fram á flestum stöðum 18. júní en við ætlum að hlaupa á Reykhólum þriðjudaginn 20. júní. Búið er að koma upp merkingum á 0,5 km fresti á Reykjanesinu, svo hver og einn þátttakandi ætti að geta fundið vegalengd sem hentar.
...62. Fjórðungsþing Vestfjarða var haldið í Félagsheimilinu Bolungarvík, miðvikudaginn 24. maí s.l.. Þingið sóttu 30 fulltrúar úr sveitarstjórnum á Vestfjörðum. Mikilsverð mál voru tekin til umræðu þ.e. stofnun og mótun framtíðarsýnar Vestfjarðastofu og innviðamál.
...Á fundi sveitarstjórnar í gær, var ákveðið að ráða Valgeir Jens Guðmudsson skólastjóra Reykhólaskóla. Valgeir hefur töluverða reynslu af skólastarfi, sem dæmi var hann deildarstjóri í grunnskóla Vesturbyggðar á Birkimel, hann hefur nýlega reynslu af starfi skólastjóra við grunnskólann á Drangsnesi, og kenndi síðasta ár við grunnskólann á Hólmavík.
...Á laugardag er „alþjóðlegi prjónadagurinn“. Handverksfélagið Assa er einn af gestgjöfunum hérlendis, og eru allir velkomnir með prjónana sína í Nesheima, bara að mæta, engin skráning eða vesen. Alheimsprjónið er á milli kl. 14 – 17, en ekki verður staðið með klukkuna yfir fólki.
Á sunnudaginn 11. júní kl. 14:00, ætlar Aðalheiður Hallgrímsdóttir frá Mýrartungu 2, ásamt fjölskyldu sinni að hafa kynningu í Króksfjarðarnesi -hjá Össu-, á nýútkominni ljóðabók foreldra Heiðu, Hallgríms Ólafssonar og Helgu Halldórsdóttur frá Dagverðará.
...Fyrir tæpri viku var nýbökuðum foreldrum færður startpakki, sveitarstjórnarkonan Sandra Rún Björnsdóttir afhenti hann þeim Agnesi og Arthur Kowalczyk. Þau eignuðust dóttur þann 8. maí, sem hlaut nafnið Aleksandra Ósk.
Fyrir áttu þau piltinn Adrian sem er eins og sést á meðfylgjandi mynd, afar stoltur af litlu systur sinni. Fjölskyldunni eru færðar innilegustu hamingjuóskir.
Myndirnar tók Sandra Rún við þetta tilefni.