herak.is
Starf ritara á skrifstofu Reykhólahrepps er laust til umsóknar. Ritari hefur umsjón með almennri þjónustu við íbúa, á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða 80% starfshlutfall. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst.
Helstu verkefni:
· Afgreiðsla.
· Móttaka á skrifstofu.
· Símavarsla.
· Skjalavarsla.
· Ýmsar umsóknir.
· Aðstoð við stjórnir og nefndir.
· Aðstoð við ýmis bókhaldsleg störf í samráði við skifstofustjóra s.s. reikningagerð og fl.
Kröfur um menntun og hæfni:
· Þekking á skjalavörslu og OneSystems skjalastjórnunarkerfi er góður kostur.
· Reynsla við bókhaldsstörf.
· Nákvæmni í starfi og mjög góð tölvukunnátta eru skilyrði.
· Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
· Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is.
Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest. Nánari upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í síma 430 3200 og netfanginu gudrun@reykholar.is.
Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila á netfangið sveitarstjori@reykholar.is eða senda í pósti á Reykhólahrepp, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppur. Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2017.