Byndís tómstundafulltrúi ávarpar hópinn áður en leit hefst
..allir drífa sig svo af stað
Betra að hafa augun hjá sér
Fjöldi fólks lagði leið sína á Barmahlíðina í gær, til að freista þess að finna páskaegg. Bryndís Soffía Jónsdóttir starfandi tómstundafulltrúi stjórnaði leitinni. Allt var samviskusamlega skráð jafnóðum og eggin fundust, svo ekki væri verið að leita eftir að 200 egg voru fundin. Nokkur egg voru svo í afgang, þeim var hent blindandi upp í loftið og kepptust viðstaddir um að grípa þau, þannig að öll egg gengu út að lokum og allir fóru ánægðir heim. Fleiri myndir eru í myndasyrpur hér til vinstri.