Enn mælast gerlar í vatni á Reykhólum
Hjálagt eru niðurstöður sýnatöku 7. nóvember
Matís rannsóknarstofa staðfesti eftirfarandi niðurstöður í dag:
Barmahlíð 7 coli 2 E.coli
Grunnskóli 2 coli og 2 E.coli
Mikilvægt er að neysluvatn sé soðið þar sem eldað er fyrir viðkvæma einstaklinga s.s í grunnskóla og Barmahlíð.
Vatnssuða er enn í gildi á Reykhólum.
Áhaldahús - Starfskraftur
Reykhólahreppur auglýsir eftir aðstoðarmanni í áhaldahús sveitarfélagsins.
Nánari upplýsingar veitir sveitarstjóri á skrifstofu Reykhólahrepps í síma 430-3200 eða bæjarverkstjóri í síma 690-6697.
Umsóknir skulu berast á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is eigi síðar en 30. nóvember næstkomandi.
Tryggvi Harðarson
Sveitarstjóri Reykhólahrepps
Rekstur tjaldsvæðis Reykhólahrepps - Útboð
Reykhólahreppur óskar eftir tilboðum í rekstur tjaldsvæðis hreppsins neðan Grettislaugar. Um er að ræða rekstur og umsjón með tjaldsvæðinu og þjónustuhúsum því tengdu.
Tilboð skulu berast á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a eða á netfangið sveitarstjori@reykholar.is eigi síðar en 30. nóvember næstkomandi.
Frekari upplýsingar veitir sveitarstjóri. Netfang sveitarstjori@reykholar.is eða í síma 430-3200.
Tryggvi Harðarson
Sveitarstjóri Reykhólahrepps
Hægt að sækja um úr Uppbyggingasjóði Vestfjarða
Kallað er eftir umsóknum um styrki úr Uppbyggingarsjóði Vestfjarða.
Umsóknarfrestur er til kl.16:00 fimmtudaginn 21. nóvember 2019.
...
Meira
Orkufundur 2019
Orkufundur 2019 verður haldinn á Hilton Reykjavík Nordica, fimmtudaginn 7. nóvember nk. Á fundinum verður aðaláherslan lögð á smávirkjanir, skipulag, umhverfismat, regluverk og kortlagningu.
Fundurinn hefst með setningu formanns, Stefáns Boga Sveinssonar, kl. 13:00 en áformað er að honum ljúki um kl. 16:00.
Aðgangur að fundinum er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá sig til leiks á vef Samtaka orkusveitarfélaga.
Vindmælingamastur sett upp á Garpsdalsfjalli
Undanfarið hafa menn á vegum EM orku unnið við að setja up mastur á Garpsdalsfjalli, til veður- og vindmælinga. Mastrið er um 80 m. hátt, búið vindmælum og ýmsum búnaði og tekur við af SODAR tæki sem sett var upp þarna fyrir ári síðan.
SODAR tækið mælir vind og loftraka með því að senda bylgjur upp í loftið og lesa endurvarpið af þeim. Veðurmælingar halda áfram næsta ár, þá munu liggja fyrir niðurstöður 2 ára mælinga.
Veðrið tafði reyndar nokkuð uppsetningu mastursins, bæði spilltist færð upp á fjallið og einu sinni þurftu þeir frá að hverfa vegna hvassviðris, sem er kannski fyrirgefanlegt á stað þar sem meiningin er að reisa vindmyllur.
Myndirnar tók Ríkarður Örn Ragnarsson.
Veiðibann á rjúpu
Rjúpnaveiði er bönnuð á eftirtöldum jörðum í Reykhólahreppi;
Kinnarstöðum,
Skógum,
Gröf,
Múla í Þorskafirði,
Þórisstöðum,
Hyrningsstöðum,
Berufirði,
Skáldsstöðum,
Hafrafellslandi 3.
Gillastöðum.
Í ár er heimilt að veiða rjúpu frá og með 1. nóvember til og með 30. nóvember, frá og með föstudögum til og með þriðjudögum á því tímabili.
- Skv. ofanskráðu er veiði óheimil miðvikudaga og fimmtudaga á tilgreindu tímabili
- Áfram er í gildi sölubann á rjúpum
- Óheimilt er að flytja út, bjóða til sölu eða selja rjúpur og rjúpnaafurðir
Upplýsingar um veiðitímabil og fleira eru á heimasíðu Umhverfisstofnunar.
Læknisdagur færður til 29. okt.
Ærslabelgurinn - niðurstöður könnunar
Búið er að taka saman niðurstöður könnunar á því hvar fólki finnst að ærslabelgurinn eigi að vera. Áður var búið að athuga óformlega hvaða staðir kæmu helst til greina, þá var nefnt við Hvanngarðabrekkuna, svæðið milli sparkvallarins og fótboltavallarins og túnið fyrir neðan kirkjuna.
45 tóku þátt í könnuninni, en allir íbúar hreppsins voru á kjörskrá svo þátttakan var frekar hófleg.
Niðurstaðan var þessi:
Hvanngarðabrekka 33
Á milli sparkvallar og fótboltavallar 7
Á túninu skólamegin við kirkjuna 5