Fjalla-Eyvindur í Tjarnarlundi
Kómedíuleikhúsið sýnir Fjalla-Eyvind í Tjarnarlundi í Saurbæ kl. 20.30 á fimmtudagskvöld, sumardaginn fyrsta. Fjalla-Eyvindur er frægasti útilegumaður allra tíma hér á landi og var í útlegð í fjóra áratugi. Hann var í raun einfaldur sveitapiltur en þótti strax í föðurgarði öðruvísi en jafnaldrarnir. Eyvindur var mikill hæfileikamaður, smiður góður, fimur mjög og meira að segja læs. Einnig þótti hann eigi ómyndarlegur. Samt varð hann að halda á fjöll eftir að hafa verið grunaður um þjófnað. Já, aðeins grunaður en aldrei varð neitt sannað. Svo kynntist hann Höllu sinni. Í leikritinu er sagan túlkuð á nýjan, óvæntan og svolítið kómískan máta.
...Meira