Reykhólar hses. formlega tekin til starfa
Reykhólar hses. er húsnæðissjálfseignarstofnun sem var stofnuð vorið 2020. Hlutverk stofnunarinnar er að byggja eða kaupa og eiga og hafa umsjón með rekstri og viðhaldi almennra félagsíbúða í Reykhólahreppi og veita þjónustu í almannaþágu samkvæmt lögum 52/2016 um almennar íbúðir.
Í stjórn Reykhóla hses. sitja:
Árný Huld Haraldsóttir formaður
Embla Dögg B. Jóhannsdóttir varaformaður
Ágústa Ýr Sveinsdóttir
varamaður er
Karl Kristjánsson.
Reykhólar hses. hefur yfir að ráða þremur íbúðum að Hólatröð 5, 7 og 9 á Reykhólum. Íbúðirnar eru auglýstar til úthlutunar eftir því sem þær losna. Skrifstofa Reykhólahrepps tekur á móti umsóknum og skulu þær berast á netfangið skrifstofa@reykholar.is.
Nánari upplýsingar um stofnunina, umsóknir og úthlutunarreglur eru undir flipanum Reykhólar hses. hér til vinstri.