Hótel Bjarkalundur auglýsir eftir starfsfólki
Hótel Bjarkalundur leitar að starfsfólki í tímabundið starf í sumar. Um er að ræða starfsmann sem sinnir almennum hótelstörfum eins og t.d. þrifum, afgreiðslu og annarri þjónustu við gesti.
Möguleiki er á því að um hlutastarf sé að ræða.
Hótelið er sumarhótel og starfsrækt frá miðjum maí og til loka september. Hótelið er á sunnanverðum vestfjörðum í ca. 200 km. Fjarlægð frá Reykjavík. Á hótelinu eru 16 herbergi auk 6 smáhýsa, auk þess er boðið upp á tjaldstæði. Á hótelinu er rekin veitingastaður með léttum veitingum.N1 rekur bensínstöð við hótelið.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 891-9090 og í tölvupósti: info.hotelbjarkalundur@gmail.com