Auglýsing vegna forsetakosninga 2020
Kjördeildin í Reykhólahreppi
Kjördeild í Reykhólahreppi við kjör forseta Íslands laugardaginn 27. júní verður á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a á Reykhólum. Kjörfundur stendur milli kl. 9:00 – 18:00.
Kosning utan kjörfundar
Hægt er að kjósa utan kjörfundar á skrifstofum sýslumanna um land allt á venjulegum afgreiðslutíma.
Kjósanda sem ekki getur sótt kjörfund á kjördegi vegna sjúkdóms,fötlunar eða barnsburðar er heimilt að greiða atkvæði í heimahúsi. Ósk um slíkt skal vera skrifleg og studd vottorði lögráða manns, um hagi kjósandans og skal hafa borist kjörstjórn eigi síðar en þriðjudaginn 23. Júní, kl. 16:00.
Kjörskrá
Kjörskrá liggur frammi til skoðunar á skrifstofu Reykhólahrepps. Jafnframt getur fólk fundið hér á kosningavef Stjórnarráðsins hvar það er á kjörskrá og hverjir hafa kosningarétt.
Hver sem er getur gert athugasemdir til sveitarstjórnar um að nafn eða nöfn einhverra kjósenda vanti á kjörskrá eða þeim sé þar ofaukið. Heimilt er að gera slíkar athugasemdir til sveitarstjórnar fram á kjördag.
Lög er varða forsetakjörið
Kosningar til embættis forseta Íslands fara fram í samræmi við lög um framboð og kjör forseta Íslands. Um kosningaathöfnina sjálfa, sem og undirbúning hennar, atkvæðagreiðslu utan kjörstaða og á kjörstað, fer að öðru leyti samkvæmt lögum um kosningar til Alþingis eftir því sem við á.
Kjörstjórnin í Reykhólahreppi
Kjörstjórn Reykhólahrepps skipa:
- Steinunn Ólafía Rasmus Reykhólum, formaður
- Sveinn Ragnarsson Svarfhóli
- Sandra Rún Björnsdóttir Reykhólum
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér persónuskilríki á kjörstað, eins og áskilið er í lögum.