Tenglar

27. desember 2022

Flugeldasala Heimamanna 2022

Flugeldasala björgunarsveitarinnar Heimamanna 2022 verður í húsi björgunarsveitarinnar að Suðurbraut 5 á Reykhólum, (húsinu á móti flokkunarsvæðinu)

 

 Opnunartími:

 Föstudag   30. 12.     kl. 12 - 20

 Laugardag 31. 12.     kl. 10 - 14

Ásamt flugeldum verður hægt að kaupa rótarskot.

 

Allur ágóði af sölunni rennur til björgunarsveitarinnar Heimamanna.

Flugeldasala björgunarsveitanna er mikilvægur liður í fjáröflun sveitarinnar og er ágóði hennar nýttur til þess að styrkja starf sveitarinnar, t.d. kaup á nýjum búnaði, endurnýjun á gömlum búnaði, þjálfun og fræðsla.

 

Einnig tekur björgunarsveitin alltaf á móti styrkjum, hægt er að leggja inn á reikning Heimamanna:

kt. 430781-0149

Banki  0153-26-000781

 

Heimamenn senda öllum hátíðar- og nýárskveðjur og sérstakar þakkir til allra þeirra sem hafa stutt okkur í gegnum árin.

 

Góðan daginn gott fólk og gleðileg jól, hér er opnunartíminn á lauginni yfir hátíðarnar.

 

Jóla og áramóta opnun:

 

Opið       föstud.  23. des.     17 - 21

 

Lokað   laugard.  24. des.

 

Opið     þriðjud.   27. des. og miðvikud.  28. des.   17 - 21

 

Lokað                      29. des. til 3. jan.

 

Skrifstofa Reykhólahrepps verður lokuð frá hádegi á Þorláksmessu og milli jóla og nýárs.

Hún verður opin aftur mánudaginn 2. janúar.

 

Vegna áríðandi erinda er hægt að hafa samband í síma 430-3203.

 

Starfsfólk skrifstofunnar óskar íbúum Reykhólahrepps gleðilegrar hátíðar.

21. desember 2022

Bæirnir í Bændablaðinu

Staður
Staður

Staður er gamalt prestssetur og ættarsaga núverandi bænda hófst með því að langafi Rebekku Eiríksdóttur kom sem prestur 1903. Síðan hefur búskapurinn gengið á milli kynslóða og Rebekka er fjórði leggur.

 

Gömul falleg kirkja er á jörðinni sem setur mikinn svip á bæjarstæðið en hún var byggð árið 1864.

 

Staður er Bærinn okkar í nýjasta Bændablaðinu.

Á nýju ári, eða frá og með 1. janúar 2023 verður breyttur opnunartími á afgreiðslu Landsbankans á Reykhólum.

Opið verður á miðvikudögum frá kl. 12:00 – 15:00, á sama tíma og læknisþjónusta er á Reykhólum.

 

Bankinn verður ekki opin á milli jóla og nýárs.

 

Fyrsti opnunardagurinn á nýju ári verður miðvikudaginn 4. Janúar.

Um daginn færði Gunnbjörn Óli Jóhannsson, eigandi og framkvæmdastjóri verktakafyrirtækisins Kols ehf., Reykhólahreppi/Reykhólaskóla góða gjöf sem á eftir að koma sér vel í skammdeginu.

Það eru Led-ljósker á staura á skólalóðinni.

 

Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri tók á móti lömpunum frá Gunnbirni. 

Áður auglýstri athugun á slökkvitækjum sem átti að vera núna í vikunni er frestað fram yfir áramót.

Ný dagsetning verður auglýst þegar nær dregur.

Lionsmenn bjóða upp á skötu með viðeigandi meðlæti og útáláti, í matsal Reykhólaskóla, í hádeginu á þorláksmessu.

Viðvaningar og viðkvæmir geta fengið saltfisk, því þarf að panta í síðasta lagi 18. des.

 

Pantað er hjá Ingvari í s. 898 7783 og ingvarsam@visir.is

 

Verð:

Fullorðnir kr. 3.600.-

Börn 12-16 ára kr. 1.600.-

Frítt fyrir yngri.

 

Reykhóladeild Lions

 

17. desember 2022

Verum eldklár um hátíðarnar

Einar Indriðason frá Hólmavík verður í slökkvistöðinni á Reykhólum, miðvikud. 21. des. og fimmtud. 22. des. til að yfirfara slökkvitæki.

 

Fólk getur komið þangað með slökkvitæki sín, og er eindregið hvatt til þess.

Meðfylgjandi er verðlisti frá Einari.

Verðlisti 01.01.2022        M.   V.S.K

                                     Yfirfarin slökkvitæki

 

Yfirfara 2 kg.Duft

 3.647 kr.

Yfirfara 6 kg.Duft

  5.406 kr.

Yfirfara 12 kg. Duft

 7.604 kr.                                  

 

 

Yfirfara 6 ltr. Léttvatn

 4.448 kr.

Yfirfara 9 ltr. Léttvatn

 5.020 kr.

 

 

Yfirfara 2 kg. Kolsýra

 3.725 kr.

Yfirfara 5 kg. Kolsýra

 4.437 kr.

                                            Vörur - verðlisti

 

Léttvatnsskammtur

 1066 kr.

Duft 1 kg.

 595 kr.

 

 

Kolsýrutæki 5 kg.

 20.376 kr.

Dufttæki 6 kg.

 10.274 kr.

Dufttæki 2 kg.

 6.588 kr.

Léttvatnstæki 6 ltr.

 11.598 kr.

 

 

Eldvarnateppi

 3.536 kr.

 

 

Reyk/hitask. Samt. 10 ára

 6.110 kr.

Reykskynjari 10 ára

 3.980 kr.

 

 

Reykskynjari WiFi 10 ára

 6.295 kr.

Yfirfara Slönguhjól

 2.557 kr,

 

 

 

 

 

 

 

 

Kveikt verður á jólatrénu við Barmahlíð mánudaginn 5. des. kl. 9:30.

 

 

Öll sem vilja vera viðstödd eru hjartanlega velkomin.

Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31