Þrettándabrenna - flugeldasala
Áramótabrennan sem var frestað á gamlárskvöld, breyttist í þrettándabrennu og verður í kvöld. Það verður kveikt í henni kl. 18.
Þrettánda- flugeldasala björgunarsveitarinnar Heimamanna verður opin í dag, 6. 1. 2020 að Suðurbraut 5, Reykhólum, milli kl. 17 og 20.
Ásamt flugeldum er hægt að kaupa græðlinga sem verður gróðursettir í vor í samstarfi við skógræktarfélagið Björk í Reykhólahreppi. Allur ágóði af sölunni rennur til Björgunarsveitarinnar Heimamanna.
Flugeldasala Björgunarsveitanna er mikilvægur liður í fjáröflun sveitarinnar og er ágóði hennar nýttur til þess að styrkja starf sveitarinnar, t.d. kaup á nýjum búnaði, endurnýjun á gömlum búnaði, þjálfun og fræðsla.
Einnig tekur björgunarsveitin alltaf á móti styrkjum, hægt er að leggja inn á reikning Heimamanna.
kt. 430781-0149
rk.nr. 0153-36-000781
Hægt er að hafa samband við okkur einnig á veffanginu heimamenn@gmail.com
Einnig er hægt að fylgjast með starfi Heimamanna á facebook.com/heimamenn
Heimamenn þakka öllum fyrir stuðninginn í gegnum árin.