Tenglar

Skerðingsstaðir, mynd Byggðasafn Dalamanna
Skerðingsstaðir, mynd Byggðasafn Dalamanna

Sjötta sögurölt Byggðasafns Dalamanna og Sauðfjárseturs á Ströndum verður þriðjudaginn 23. júlí á Skerðingsstöðum í Hvammssveit.

Lagt af stað frá hlaðinu á Skerðingsstöðum kl. 19:30. Þar munu Bjargey og Jón Egill Skerðingsstaðabændur sýna og segja frá broti af því besta sem staðurinn hefur uppá að bjóða.

 

Yfirsýn yfir óðal Auðar djúpúðgu, aftökur, bænir, ferðasaga húss og margt fleira.

  

Sorpsvæðið á Reykhólum verður opið í sumar virka daga milli kl. 13 – 15.


Ef óskað er eftir losun utan þess tíma má hafa samband við:

Friðrik í síma: 788-5822 eða Guðmund í síma: 690-6697.

 

 Lúgur fyrir plast og pappa verða samt eins og verið hefur aðgengilegar allan sólarhringinn, sem og almennir sorpgámar.


  

Sveitarstjóri

  

Fimmtudaginn 18. júlí kl. 19:30 verður vikulegt Sögurölt á dagskránni, en Byggðasafn Dalamanna og Sauðfjársetur á Ströndum stenda fyrir þeim viðburðum í samvinnu við fleiri.

 

Nú verður gengið um holt og hæðir við Stað í Steingrímsfirði, auk þess sem kirkjugarðurinn og Staðarkirkja verða skoðuð. Yfirdrifið er af sögum og sögnum sem tengjast bænum og kirkjunni.

Mæting er heima á Stað.

  

Reykhólahreppur auglýsir leiguíbúðir lausar til umsóknar. Um er að ræða nýjar íbúðir við Hólatröð og aðrar íbúðir sem kunna að vera lausar eða að losna.


Umsóknir skulu hafa borist á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a eða á tölvupóstfangið sveitarstjori@reykholar.is, fyrir 29. júlí n.k.

 

Staðfesta þarf fyrri umsóknir sem hafa verið sendar inn frá s.l. áramótum.

 

Sveitarstjóri

 

  

Afgreiðsla Landsbankans á Reykhólum verður opin eftirfarandi daga í júlí og ágúst:


Mánudagurinn  22. júlí verður opið frá 12:00 – 15:00.

Mánudagurinn  29. júlí verður opið frá 12:00 – 15:00.


Þriðjudagurinn 6. ágúst verður lokað vegna sumarleyfa.


Mánudaginn 12. ágúst verður opið frá 12:00 – 15:00.


Mánudaginn 19. ágúst  verður lokað vegna sumarleyfa.


Mánudagurinn 26. ágúst verður opið frá 12:00 – 15:00.


Það er einnig hægt að hafa samband við Landsbankann á Patreksfirði í síma 410-4153.


Kveðja, Ásta Sjöfn

  

Föstudagur 26. :

15:00  Setning Reykhóladaga og Kassabílarallý á Hellisbrautinni

17:00  Þarabolti

19:00  Pub Quiz á Hlunnindasýningunni, aldurstakmark 18 ár

22:00  Viðburður í Sjávarsmiðjunni, tónleikar Myrru Rósar

sjá nánar - 


Laugardagur 27. :

10:00  Litardýrðarhlaup Reykhóladaga

13:00  Dráttarvélar

Skrúðganga, dráttarvélakeppnin og læðutog.

15:00-16:30 Markaður í íþróttahúsinu

16:00-18:00  Karnival (hoppukastalar, hæfileikakeppni, loftboltar o.fl.)

18:00  Hlé á dagskrá

20:00  Kvöldvaka

21:00-22:00 Barnaball - sundlaugarpartý, 13 - 17 ára

23:00  Dansleikur með hljómsveitinni Mannamótum, 18 ára aldurstakmark. Miðaverð 2500

sjá nánar - 


Sunnudagur 28. :

200 ára minningardagskrá um Jón Thoroddsen

14:00  Setning minningarhátíðar

14:15  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fer yfir verk Jóns

15:00  Tónlistarflutningur.

Hera Björk og Björn Thoroddsen, þar sem flutt verða meðal annars efni eftir Jón Thoroddsen

sjá nánar -

  

Jón Thoroddsen
Jón Thoroddsen
1 af 2

Sunnudaginn 28. júlí verður þess minnst að um þessar mundir eru liðin 200 ár frá fæðingu Jóns Thoroddsen, - heimildum virðist ekki bera saman hvort hann var fæddur 1818 eða 19 -. Á þeirri dagskrá koma m. a. fram Hera Björk og Björn Thoroddsen, og flytja efni eftir hann.

 

 

Á Hlunnindasýningunni vantar heilmikið af gömlum dagblöðum, til að nota við þurrkun á þangi.  

Jamie Lee er að vinna og þurrka þörunga og þang til að nota á sýningunni.


Það væri afar vel þegið ef sveitungarnir gætu safnað dagblöðum og látið hana hafa á Hlunnindasýningunni í staðinn fyrir að setja þau í gáminn.


Jamie getur sótt ef einhver heldur til haga blöðum á leiðinni milli Króksfjarðarness og Reykhóla.

 

  

Það er fullbókað á föstudaginn og því ekki hægt að panta take away það kvöld.

  

Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ingibjörg Kristjánsdóttir
1 af 4

Nú er komið að því að velja íbúa ársins. Ef þið viljið tilnefna íbúa ársins þá er tekið við tilnefningum til 20. júlí. :)


Senda má tilnefningar á netfangið: johanna@reykholar.is


  



...
Meira

Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30