Tenglar

1 af 3

Nýkomin er út Svefneyingabók eftir Þórð Sveinbjörnsson.


Þórður fæddist í Svefneyjum árið 1941 og átti þar heima til 17 ára aldurs. Hann lýsir hér á eftirminnilegan hátt bernskuárum sínum frá sjónahóli ungs drengs og segir frá búskaparháttum um miðja 20. öldina, svo og ýmsum atburðum.


Meðal annars er kafli þar sem sagt er frá ferð á sumarhátíð í Bjarkalundi þegar Þórður er á 14. ári, og er óhætt að segja að margt hafi komið ungum samkomugesti undarlega fyrir sjónir á því balli.  

 

Frá landnámi eyjanna og til okkar daga hefur margt á dagana drifið og hefur höfundur viðað að sér ýmsum heimildum sem varpa ljósi á mannlífið þar í aldanna rás.

 

 Bókina prýðir fjöldi mynda af fólki, fallegri náttúru eyjanna, bátum og fuglalífi sem þar er ríkulegt.


Bókin er til sölu í Upplýsingamiðstöðinni á Reykhólum og í Handverksmarkaðnum í Króksfjarðarnesi.

Einnig hjá höfundi í síma 699 2400 og gisting@gisting.is

 

  

mynd af hrt.is
mynd af hrt.is

Von er á rotþróalosunarbíl til Reykhóla í næstu viku.

Þeir í sveitarfélaginu sem vilja láta tæma hjá sér rotþrær eru beðnir að láta vita  á skrifstofu hreppsins, s. 430 3200.

 

  

6. júlí 2019

Sögurölt á Heinabergi

Næsta sögurölt Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna verður þriðjudaginn 9. júlí kl. 19:30, frá bæjarhlaðinu á Heinabergi.

Þar verður rölt um jörðina, lífið í fjörunni kannað, stuðlaberg og annað það sem náttúran býður uppá það kvöldið. Þá verða sagðar sögur af kvenskörungum, bardögum, harðindum, búvísindum, sauðaþjófum og öðru markverðu og minna markverðu sem tengist sögu Heinabergs.

Leiðsögn er í höndum Höllu Sigríðar Steinólfsdóttur bónda í Ytri-Fagradal og Valdísar Einarsdóttur héraðsskjalavarðar.

Strandamenn, Dalamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir gestir eru velkomnir í sögurölt með okkur. Engin önnur fjárútlát en að koma sér á staðinn.

  

3. júlí 2019

Bátadagar á næstu helgi

Minnt er á bátadagana um helgina.

27. júní 2019

Opið í Ólafsdal

Stytta í Ólafsdal af hjónunum Guðlaugu Zakaríasdóttur og Torfa Bjarnasyni.
Stytta í Ólafsdal af hjónunum Guðlaugu Zakaríasdóttur og Torfa Bjarnasyni.
1 af 6

Sumarið 2019 er opið fyrir gesti í Ólafsdal frá 23. júní til 18. ágúst, alla daga kl. 12 - 17.


Undirbúningur sumarstarfsins hófst með vinnuferð sjálfboðaliða til að setja niður Ólafsdalsgrænmetið 1. júní. Ólafsdalshátíðin verður á sínum stað laugardaginn 17. ágúst með glæsilegri dagskrá.


  

...
Meira
mynd af dalir.is
mynd af dalir.is

Bjarnastaðir í Saurbæ

Næsta sögurölt Sauðfjárseturs á Ströndum og Byggðasafns Dalamanna verður í samvinnu við Hugrúnu og Guðmund bændur á Kjarlaksvöllum og verður rölt um Bjarnastaði í Saurbæ.


Röltið verður miðvikudaginn 26. júní kl. 19:30 frá hliðinu að Bjarnastöðum. Rölt verður um landnámsjörð Sléttu-Bjarna, skoðaðar friðlýstar hofrústir, dys Bjarna og annað sem verður á leið okkar og gefur tilefni til að stoppa við og segja sögur. Þetta er stutt og þægilegt rölt og fótafúnir geta auðveldlega sleppt þeim stutta hluta sem er á fótinn.

Dalamenn, Strandamenn, íbúar Reykhólahrepps og aðrir góðir gestir eru velkomnir í rölt með okkur. Söguröltin eru í boði safnanna og því engin fjárútlát að taka þátt.  

  

Laugardaginn 29. júní er hátíðarmessa í Skálmarnesmúlakirkju kl.14.00. sr. Hildur Björk Hörpudóttir þjónar fyrir altari, Ingimar Ingimarsson organisti og kirkjukórinn leiða tónlist og söng.

Við munum eiga góða stund saman og eru allir hvattir til að taka eitthvað með sér á sameiginlegt veisluborð í kirkjukaffinu sem fer fram í sumarbústaðnum hennar Þuríðar.

Sr. Hildur Björk Hörpudóttir mun kveðja í messunni, en frá og með 1. júlí tekur sr. Sigríður Óladóttir við sem sóknarprestur í nýstofnuðu Breiðafjarðar og Strandaprestakalli.

Sumarkveðjur!

  

Siglingaleiðin
Siglingaleiðin
1 af 2

Félag áhugamanna um Bátasafn Breiðafjarðar á Reykhólum, í samvinnu við Báta- og hlunnindasýninguna á Reykhólum, gengst nú fyrir bátahátíð á Breiðafirði í tólfta sinn dagana 5-6 júlí nk.


 Nú verður breyting á því nú eru allar gerðir báta velkomnar, ekki bara trébátar.


Fyrirhuguð dagskrá er á þessa leið:  (nánar hér)


  

...
Meira
1 af 2

Tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018, vegna legu Vestfjarðavegar frá Bjarkarlundi að Skálanesi.


Sveitarstjórn Reykhólahrepps auglýsir hér með tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006 – 2018, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.


Breytingin snýr að því að gerðar eru breytingar á veglínu Vestfjarðavegar frá Bjarkalundi að Skálanesi við Þorskafjörð. Nýja veglínan fylgir fyrri línu í megindráttum en víða á leiðinni eru nokkur frávik. Þá felur breytingin í sér að nýjar námur, vegna vegagerðar, eru færðar inn á skipulag og fullfrágengnar námur sem hætt er að nota eru felldar út.


Tillaga að breytingu á aðalskipulagi, ásamt umhverfisskýrslu eru aðgengilegar hér:

Skipulagstillagan og umhverfisskýrsla verða til sýnis á skrifstofu sveitarfélagsins, Maríutröð 5a Reykhólum, 380 Reykhólahreppi og hjá Skipulagsstofnun í Borgartúni 7b Reykjavík.


Ábendingar og athugasemdir við aðalskipulagstillögu skal senda til sveitarstjóra á netfangið sveitarstjori@reykholar.is. Einnig er hægt að senda athugasemdir merktar „Breyting á aðalskipulagi Reykhólahrepps“ á Sveitarfélagið Reykhólahreppur, Maríutröð 5a Reykhólum, 380 Reykhólahreppi.

Þau sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir til sunnudagsins 25. ágúst 2019.


Tryggvi Harðarson, sveitarstjóri

 

  

18. júní 2019

Fundur um Reykhóladaga 2019

Undirbúningsfundur vegna Reykhóladaga verður á Báta- og hlunnindasýningunni á fimmtudag 20. júní, kl.18.

Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30