Hjá Norðursalti er leitað að framleiðslustjóra
Norðursalt er að leita að framleiðslustjóra fyrir saltverksmiðjuna á Reykhólum.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur í síma 893-9421. Einnig má senda fyrirspurn á gulli@nordurco.com
Norðursalt er að leita að framleiðslustjóra fyrir saltverksmiðjuna á Reykhólum.
Upplýsingar um starfið veitir Guðlaugur í síma 893-9421. Einnig má senda fyrirspurn á gulli@nordurco.com
Á mánudaginn 18. maí næstkomandi kl 12:00 verður haldin kynning um skiplagsbreytingu vegna vindorkugarðs í Garpsdal.
Vegna þeirra takmarkanna sem í gildi vegna COVID verður kynningin haldin sem opinn ZOOM fjarfundur sem áhugasamir geta skráð sig inn á.
Upplýsingar um skráningu verða aðgengilegar á emorka.is og reykholar.is áður en fundurinn hefst.
Gestir munu geta borið fram spurningar og athugasemdir á fundinum og með því að senda inn spurningar á netfangið rr@emp.group
Fundurinn og kynningarefni hans verður síðan aðgengilegt á heimasíða EM Orku (www.emorka.is).
Fyrir hönd EM Orku,
Ríkarður Ragnarsson
Verkefnastjóri
Greinargerð og umhverfisskýrslu, og uppdrátt er hægt að sjá í Tilkynningar hér neðst á síðunni.
Þessar kríur voru við Gilsfjarðarbrúna núna 9. maí. Þar voru þær í æti í röstinni frá brúnni ásamt frændum sínum hettumávunum og fleiri fuglum. Krían hefur haft það orð á sér að vera mjög stundvís og koma í varplöndin ætíð á sama tíma.
Á Wikipedia segir um kríuna:
Krían hefur verið friðuð tegund á Íslandi síðan 1882. Hrun í sandsílastofninum sem má trúlega rekja til loftslagsbreytinga hefur haft afar neikvæð áhrif á afkomu kríunnar á Íslandi. Varpárangur kríunnar hefur verið mjög lélegur frá og með 2005. Krían var ekki metin í hættu við byrjun 20. aldar en á nýjasta válista Náttúrufræðistofnunarinnar frá árinu 2018 er krían nú metin í nokkurri hættu.
Ekkert nýtt smit hefur greinst á Vestfjörðum síðan 27. apríl sl. Alls eru nú 4 virk smit í umdæminu (14 á landinu öllu).
...Vestfjarðastofa stendur fyrir örkönnun varðandi sumarvinnu ungs fólks og námsmanna á Vestfjörðum. Eins og nafnið gefur til kynna er könnunin stutt og tekur aðeins örfáar mínútur að svara. Í henni er verið að leitast eftir að skoða áhuga ungs fólks á að stunda vinnu á Vestfjörðum í sumar.
Við hvetjum alla sem er eru í námi og hafa hug á að leita sér að atvinnu á svæðin að svara en með því er verið að auðvelda sveitarfélögum og fyrirtækjum á svæðinu hvaða áherslur skuli leggja þegar tekið verður þátt í sérstöku átaki ríkisstjórnar varðandi sumarstörf fyrir námsmenn 18 ára og eldri.
Linkinn á könnuninni er að finna hér
Þangvertíð er hafin hjá Þörungaverksmiðjunni og fer vel af stað. Grettir, öflunar- og flutningaskip verksmiðjunnar er nýkominn úr slipp og þangsláttuprammar og bátar sem notaðir eru við öflunina hafa verið yfirfarnir og lagaðir undanfarið.
...
Íbúar Reykhólahrepps hafa verið til fyrimyndar í tiltekt undanfarið og eiga þeir hrós skilið fyrir það. Reykhólahreppur vill hvetja til áframhaldandi umhverfisvitundar.
Í stað umhverfisdags þurfum við, vegna covid-19, að breyta fyrirkomulaginu.
Ákveðið hefur verið að hafa maí sem umhverfismánuðinn og halda áfram að gera snyrtilegt í kringum okkur.
Fyrir áhugasama ákváðum við að hafa hashtaggið #umhverfisreykhóla til að hafa svoldið gaman af þessu og til að sýna hvert öðru afraksturinn með myndum. Hægt er að pósta myndunum hvar sem er á netinu.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps
Nú styttist í að vinnustaðakeppnin Hjólað í vinnuna 2020 hefjist í átjánda sinn en að þessu sinni fer keppnin fram frá 6. - 26. maí. Við hvetjum alla til að skrá sig strax til leiks.
Þessa dagana er verið að dýpka Reykhólahöfn. Verktaki er Hagtak hf.
Að þessu sinni er aðallega verið að halda við innsiglingunni og fjarlægja efni sem sjórinn ber í rennuna og höfnina jafnt og þétt.
Þann 21. apríl voru opnuð tilboð í stækkun ferjubryggju í Flatey og byggingu sjóvarnargarðs. Í verkið bárust 2 tilboð, bæði vel yfir áætluðum verktakakostnaði Vegagerðarinnar sem var tæpar 36 millj.
Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps í dag var ákveðið að ráða Ingibjörgu Birnu Erlingsdóttur í starf sveitarstjóra.
Ingibjörg er flestum hnútum kunnug hjá Reykhólahreppi, því hún var sveitarstjóri frá árinu 2010 – 2018. Síðan þá hefur hún gegnt starfi framleiðslustjóra við saltverksmiðju Norðursalts á Reykhólum.