Tenglar

Starfsfólk vantar í aðhlynningu og ræstingu í dvalar og hjúkrunarheimilinu Barmahlíð frá 20. Ágúst.


 Ræstingin er 62% starf og unnið er frá 9-14 alla virka daga.


Í aðhlynningunni er starfsprósenta samkomulag. Húsnæði í boði á staðnum.


Allar nánari upplýsingar veittar á e-mail, barmahlid@reykholar.is eða í síma 694 2386

  Hjúkrunarforstjóri.

16. júlí 2018

Styttist í Reykhóladaga

Frá Reykhóladögum 2017-
Frá Reykhóladögum 2017-
1 af 3

Hér eru komin drög að dagskrá Reykhóladaga, sem eru helgina 27. – 29. Júlí, ef einhverjir vilja bæta við viðburði í stuðið þá mega þeir hafa samband við Jóhönnu, johanna@reykholaskoli.is


  

...
Meira
Frá Reykhólum
Frá Reykhólum
1 af 3

Auglýst eru til umsóknar 2 áhugaverð störf, það eru stöður sveitarstjóra Reykhólahrepps og hjúkrunarforstjóra dvalar- og hjúkrunarheimilisins Barmahlíðar. Hér eru slóðir á auglýsingarnar;   https://capacent.is/radningar/storf/reykholahreppur/sveitarstjori-6907/

 https://capacent.is/radningar/storf/barmahlid/hjukrunarforstjori-6906/

Einnig má nálgast þær í Tilkynningar hér fyrir neðan.

Fyrir 10 árum var parhúsið við Hólatröð 1 - 3 á Reykhólum byggt í samstarfi verktaka og hreppsins.


Nú hefur sveitarstjórn hug á að endurtaka leikinn og ráðast í byggingu við Hólatröð 5 – 7.

...
Meira
12. júlí 2018

Sveinn Ragnarsson sextugur

Sveinn Ragnarsson Svarfhóli varð sextugur í gær 11. júlí.  Sveinn sem m.a. starfar sem vefstjóri Reykhólavefsins, stakk af að heiman á afmælisdaginn í skemmtiferð af tilefni þessa stóra áfanga. Hann gaf lítið uppi um ástæður, enda maður hlédrægur; yfirleitt er hann maðurinn á bak við myndavélina að leita fanga í frétt á vefinn. Hann sést oft við að ná á mynd, fallegu augnarbliki í sveitinni okkar.  Sveini er óskað innilega til hamingju með afmælið.

Íbúar á Reykhólum þurfa ekki lengur að sjóða vatn til drykkjar.  Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða hefur aflétt kröfu um vatnssuðu eftir að vatnssýni reyndust í lagi.

9. júlí 2018

Heim í Búðardal

Bæjarhátíðin Heim í Búðardal verður haldin dagana 13. - 15. júlí.

Sjá auglýsingu.

Dalli, íbúi ársins 2017
Dalli, íbúi ársins 2017

Nú er komið að árlegum tilnefningum íbúa ársins.

Allir eru hvattir til að tilnefna þau sem þeim þykir hafa staðið upp úr á árinu og hafa sett svip á samfélagið. Nú er um að gera að horfa jákvæðum augum á tilveruna og taka eftir öllum þeim frábæru hlutum sem íbúar Reykhólahrepps hafa tekið sér fyrir hendur.

Í tilnefningunni verður að koma fram hver er tilnefndur, fyrir hvað og hver tilnefnir.

Tilnefningar sendist á johanna@reykholaskoli.is  Tekið er við tilnefningum til 25.júlí kl. 22:00.

Dagana 11. - 22. júlí verður sundlaugin opin milli kl. 13 og 21:30.

Sundlaugarvörður.

Sæl ykkur til upplýsingar um stöðuna í dag - erum ekki búin að fá vottorðin send en þetta er staðan.

 

  

Reykhólar 28.júní 2018 tekið var reglubundið neysluvatnssýni á sveitarskrifstofu, 1. E.coli ræktast úr sýninu.

Reykhólar  2. Júlí 2018 endurtekin sýnataka tekin  2 sýni, á tjaldstæði og Barmahlíð, 1.E.colí ræktast úr sýninu frá Barmahlíð

Reykhólar 4.júlí 2018 2 sýni tekin Hólabúð og Barmahlíð,

Reykhólar 6.júlí 2018: Fyrstu niðurstöður berast frá sýnatöku 4.júlí sl og ræktast 1 lítil kólónía upp í sýni frá Barmahlíð (skv rannsóknarstofu vegna smæðar er líklegast um kólí að ræða) en ekki hægt að staðfesta fyrr en eftir sólahring hvort um E.coli eða kólí sé að ræða. Ekkert ræktast upp í sýni tekið í Hólabúð. Vatnssuðu er því áframhaldið á Reykhólum þar til staðfest niðurstaða liggur fyrir.

 

Reykhólar

Með kveðju

 

Anton Helgason

Heilbrigðiseftirlit Vestfjarða

 

  

Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30