Sr. Jóhanna Sigmarsdóttir leysir af á Reykhólum
Eins og hér kom fram var sr. Elína Hrund Kristjánsdóttir á Reykhólum fyrir nokkru skipuð í embætti sóknarprests í Oddaprestakalli syðra frá 1. október. Í stað hennar hefur sr. Jóhanna Sigmarsdóttir verið sett til að sinna þjónustu í Reykhólaprestakalli fram að áramótum. Hún var áður sóknarprestur og prófastur á Eiðum á Fljótsdalshéraði. Ekki liggur fyrir hvenær Reykhólaprestakall verður auglýst laust til umsóknar.
...Meira