Forsetinn klippir á borðann með aðstoð félaganna Garðars og Sørens.
Fjöldi fólks kom í saltvinnsluna ...
... til að samgleðjast frumkvöðlunum og hitta forsetann.
Ólafur Ragnar ásamt sveitarstjórn og sveitarstjóra fyrir dyrum Bjarkalundar.
Ingibjörg Birna sveitarstjóri, Ólafur Ragnar og Andrea oddviti sveitarstjórnar.
Í Bjarkalundi var margt girnilegt á hlaðborði.
Auðvitað var sungið fyrir forsetann þegar hann kom í Reykhólaskóla.
Dísa Sverrisdóttir, Ólafur Ragnar, Steinunn Rasmus og Anna Greta skólastjóri.
Forsetinn heilsaði upp á æsku héraðsins ...
... og strax á eftir heimsótti hann gamla fólkið.
Nóg var að spjalla og nóg með kaffinu í Barmahlíð.
Forsetinn og Örnólfur Thorsson forsetaritari (hægra megin) á Báta- og hlunnindasýningunni ásamt bátamönnunum Sigurði Bergsveinssyni og Eggert Björnssyni (skinnklæddum) og Ingibjörgu Birnu sveitarstjóra.
Heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í Reykhólahrepp í gær tókst með ágætum. Myndirnar sem hérna fylgja tók Jón Þór Kjartansson hvar sem forsetinn kom og birtast hér fyrst þær síðustu í röðinni – þrjár myndir frá opnunarhátíð saltvinnslunnar á Reykhólum, sem var ástæða þess að forsetinn kom í heimsókn í héraðið einmitt núna. Þar klippti Ólafur Ragnar á borða með aðstoð eigendanna og frumherjanna Garðars Stefánssonar og Sørens Rosenkilde að fjölda gesta viðstöddum og lýsti vinnsluna formlega tekna til starfa.