Tenglar

1 af 2

Fjölbreytt dagskrá með yfirskriftinni „Brjáluð ást“ verður á Laugum í Sælingsdal á morgun, laugardag, helguð Laxdæla sögu en þó ekki síst þeim Guðrúnu Ósvífursdóttur og Bolla Þorleikssyni ef að líkum lætur. Fagnað verður samstarfsverkefni þriggja norrænna leikhúsa og heimamanna í Dölum um Laxdælu. Dagskráin hefst kl. 10 í fyrramálið og stendur allan daginn og lýkur með harmonikuballi fyrir unga sem aldna.

...
Meira
Álagablettur sem koma mun við sögu.
Álagablettur sem koma mun við sögu.

Kvöldskemmtun verður í Sauðfjársetrinu á Ströndum (Sævangi við Steingrímsfjörð) annað kvöld (þjóðtrúardaginn mikla 7-9-13) og hefst kl. 20. Þar verður opnuð sögu- og listasýningin Álagablettir auk þess sem flutt verður tónlist og ýmis skemmtilegur fróðleikur. Sýningin mun verða uppi á listasviðinu í Sævangi út næsta sumar. Dagrún Ósk Jónsdóttir á Kirkjubóli við Steingrímsfjörð hefur haft veg og vanda af undirbúningi sýningarinnar, með dyggri aðstoð föður síns. Munu Dagrún og þjóðfræðingarnir Rakel Valgeirsdóttir og Jón Jónsson miðla fróðleik um álagabletti þegar sýningin verður opnuð.

...
Meira
Séð yfir Reykjavíkurflugvöll. Ljósmynd: © Mats Wibe Lund.
Séð yfir Reykjavíkurflugvöll. Ljósmynd: © Mats Wibe Lund.

Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi, sem haldinn var á Egilsstöðum  um síðustu helgi, samþykkti ályktun þar sem því er mótmælt kröftuglega að Reykjavíkurflugvöllur í Vatnsmýrinni verði lagður niður. Greinargerð með ályktuninni er á þessa leið:

...
Meira

„Aðalfundur samtakanna Landsbyggðin lifi leggur áherslu á að Íbúðalánasjóður eða ígildi hans þurfi að vera til staðar fyrir þá landsmenn sem ekki hafa aðgang að fjármagni til húsnæðiskaupa í gegnum bankana. Sá hópur samanstendur af fólki sem vegna búsetu eða félagslegrar stöðu uppfyllir ekki skilyrði bankanna. Bankar eru reknir í hagnaðarskyni en það á að vera hlutverk Íbúðalánasjóðs að veita þjónustu í almannaþágu.“

...
Meira

Ákveðið hefur verið að prófa að fyrsti föstudagur í hverjum mánuði verði sérstakur þemadagur í Reykhólahreppi hvað klæðaburð varðar. Fyrsti föstudagur í september er á morgun og verður náttfatadagur. Fólk í sveitarfélaginu er því hvatt til þess að klæðast náttfötum á morgun eftir því sem veður og færð og aðrar aðstæður framast leyfa. Hugmyndir um þemu fram til áramóta eru þessar: 4. október verði bleikur dagur, 1. nóvember verði allir með hálstau, hvort sem það eru bindi, slaufur eða slæður, en 6. desember verði ljótupeysudagur.

...
Meira

Lokahóf Ungmennasambands Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN) verður í Reykhólaskóla í kvöld, fimmtudag, og hefst kl. 19. Veittar verða viðurkenningar fyrir góða mætingu á æfingar og mót, fyrir árangur í sumar og fyrir mestar framfarir milli ára. Allir fá plagg með árangrinum í hinum ýmsu greinum og samanburði við síðasta ár.

...
Meira
Ólafur Ragnar Grímsson. Ljósm. forseti.is.
Ólafur Ragnar Grímsson. Ljósm. forseti.is.

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, kemur í heimsókn í Reykhólahrepp þriðjudaginn 17. september. Dagskráin hefst með móttöku og hádegisverði í Bjarkalundi en síðan verður haldið að Reykhólum þar sem forsetinn heimsækir Reykhólaskóla og Hjúkrunar- og dvalarheimilið Barmahlíð og skoðar Báta- og hlunnindasýninguna. Loks verður hann viðstaddur risgjöld (opnunarhóf) saltverksmiðjunnar nýju við Reykhólahöfn.

...
Meira

Héraðsbókasafn Reykhólahrepps í Reykhólaskóla verður í vetur opið á mánudögum og miðvikudögum kl. 16-18 og auk þess fyrsta laugardag í hverjum mánuði kl. 11-13. Safnið verður opið á framangreindum tíma á morgun, miðvikudag, og síðan á laugardaginn.

...
Meira
1 af 2

Halldór Jóhannesson skipstjóri frá Hyrningsstöðum í Reykhólasveit sendi vefnum svohljóðandi póst núna í kvöld: Sæll, mig langar að þakka þér fyrir birtinguna á auglýsingunni fyrir mig og segja þér að það voru mjög góð viðbrögð við henni. Þetta er greinilega mjög góð leið til að auglýsa í héraðinu og ættu sveitungarnir að nota þessa þjónustu hjá Reykhólavefnum meira til að koma upplýsingum sín á milli.

...
Meira
Ingvar Samúelsson.
Ingvar Samúelsson.

„Í tilefni vissra tímamóta sem urðu þann 8. ágúst efni ég til pöbbakvölds í Bjarkalundi núna á laugardagskvöld, 7. september. Fyrsti kúturinn er frír, léttar veitingar í boði. Ólafur Bragi sér um tónlistina frá klukkan tíu og fram til eitt. Ég vona að sem flestir láti sjá sig og hristi af sér rigningu sumarsins.“

...
Meira

Atburðadagatal

« J�n� 2025 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30