Hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti á fundi sínum 9. júní 2011 að auglýsa tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018, um er að ræða breytingar á Vestfjarðavegi nr. 60 frá Vattarfirði í Kjálkafjörð. Samkvæmt 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með auglýst eftir athugasemdum við tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps. Skipulagsuppdrættir, greinargerð og umhverfisskýrsla liggja frammi á skrifstofu Reykhólahrepps og hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Reykjavík, frá 11. júlí til 29. ágúst 2011. Ennfremur eru gögnin aðgengileg hér á heimasíðu sveitarfélagsins.
...
Meira