Við komuna til Reykhóla: F.v. Ingibjörg Snorradóttir, Kristrún Björnsdóttir, Snorri Már Snorrason, Ingibjörg Birna Erlingsdóttir sveitarstjóri, Bergþór Jóhannsson og Svanhildur Sigurðardóttir í Sjávarsmiðjunni ásamt tveimur ungum dömum.
Snorri og Kristrún rétt fyrir brottförina frá Djúpadal í gærmorgun, þegar lagt var á Hjallaháls.
Snorri og Bergþór að koma á Barmahlíðina á leiðinni út á Reykhóla.
Verslunin Hólakaup og Hjalti Hafþórsson kokkur buðu til grillveislu í Reykhólaskóla í gærkvöldi. F.v. Ólafía Sigurvinsdóttir og Sigurvin Helgi Eyvindsson frá Hólakaupum, hjónin Hjalti matreiðslumaður og Ingibjörg Birna sveitarstjóri, Snorri Már, Kristrún og Ingibjörg Snorradóttir.
Landnámsjörðin Miðjanes er á miðju Reykjanesi, um 5 km utan við Reykhóla.
Snorri Már Snorrason frá Ísafirði er um það bil hálfnaður að hjóla Vestfjarðahringinn, nærri 800 kílómetra vegalengd. Hann er núna í Reykhólasveitinni ásamt Kristrúnu konu sinni og Ingibjörgu systur sinni. Ekkert er hjólað í dag heldur var ákveðið í gær án fyrirvara að nota daginn í dag til að skoða sig um í Reykhólasveit. Upphaflega var ekki ætlunin að víkja af þjóðvegi 60 og fara út á Reykhóla en það breyttist og segjast ferðalangarnir ekki sjá eftir því. Fyrir áratug greindist Snorri Már með Parkinsonsveiki en þrátt fyrir að vera metinn 75% öryrki hefur hann viðhaldið starfsþreki sínu með hreyfingu og er í fullu starfi sem þróunar- og gæðastjóri hjá Prentsmiðjunni Odda. Langt er síðan Snorri fluttist suður, en foreldrar hans og systkini eru búsett á Ísafirði. Fyrir tveimur árum hjólaði hann stóra hringinn í kringum landið, en þá varð Vestfjarðakjálkinn eftir.