Tenglar

Lögreglan á Vestfjörðum vill enn og aftur beina til foreldra og forráðamanna barna, sem og annarra, ábendingu um mikilvægi þess að nota endurskinsmerki, sérstaklega núna þegar birtutíminn er sem stystur. Lögreglan á landsvísu biður jafnframt ökumenn að gæta vel að gangandi vegfarendum og þá sérstaklega í nágrenni við skóla. Sveitarstjórinn í Reykhólahreppi tekur eindregið undir þetta.

...
Meira
Frá Skógum í Þorskafirði / ÞÓ.
Frá Skógum í Þorskafirði / ÞÓ.

„Viltu eiga góða stund með börnunum þínum í skóginum og höggva þitt jólatré?“ Þannig spyrja þau Þórarinn Ólafsson og Björg Karlsdóttir í Stekkjarlundi við Berufjarðarvatn. Þau eru umsjónarmenn jarðarinnar Skóga í Þorskafirði, sem þekktust er fyrir að vera fæðingarstaður þjóðskáldsins séra Matthíasar Jochumssonar. Undanfarnar vikur hafa þau verið að grisja hina ýmsu barrreiti í skóginum og er því verki ekki nálægt því lokið. „En núna ætlum við að grisja reiti þar sem eru minni tré sem hafa ekki pláss til að verða stór og falleg“, segja Þórarinn og Björg.

...
Meira
Á flugvellinum á Reykhólum með jólahangikjötið í fanginu.
Á flugvellinum á Reykhólum með jólahangikjötið í fanginu.
1 af 8

Mikil vinnutörn er í Reykskemmunni Stað um þessar mundir að pakka og ganga frá pöntunum til sendingar. „Það eru allir í fjölskyldunni í þessu,“ segir Eiríkur Snæbjörnsson bóndi á Stað. Núna komu menn meira að segja á lítilli einkaflugvél á Reykhóla gagngert til að sækja jólahangikjötið enda er framleiðslan mjög eftirsótt. „Já, framleiðslan og salan hafa farið jafnt og þétt upp á við með árunum,“ segir Eiríkur. Þarna er um að ræða lambakjöt og sauðakjöt, rúllupylsur og bjúgu. Reykingin er bæði taðreyking og birkireyking.

...
Meira
Nýja stjórnin í björgunarsveitinni, talið frá vinstri: Játvarður Jökull, Ágúst Már, Egill, Eiríkur og Brynjólfur.
Nýja stjórnin í björgunarsveitinni, talið frá vinstri: Játvarður Jökull, Ágúst Már, Egill, Eiríkur og Brynjólfur.
1 af 2

Ný stjórn í Björgunarsveitinni Heimamönnum í Reykhólahreppi var kosin á aðalfundi hennar um síðustu helgi. Auk stjórnarkjörsins voru nýir félagar boðnir velkomnir og ársskýrsla og ársreikningar fyrir árið 2012 lögð fram. Á fyrsta fundi hinnar nýju stjórnar skipti hún með sér verkum eins og hér segir:

...
Meira

Byggðasamlag Vestfjarða um málefni fatlaðs fólks vekur athygli á réttinum til að sækja um styrki. Samlaginu er heimilt að veita styrk til greiðslu námskostnaðar sem ekki er greiddur skv. ákvæðum annarra laga, enda telst námið hafa gildi sem hæfing eða endurhæfing. Einnig er heimilt að veita þeim sem eru 18 ára og eldri styrk til verkfæra- og tækjakaupa í sambandi við heimavinnu eða sjálfstæða starfsemi, enda teljist starfsemin hafa gildi sem félagsleg hæfing eða endurhæfing sem miði að því að auðvelda fötluðum að skapa sér atvinnu.

...
Meira
Eyvi og Ólafía í búðinni sinni á Reykhólum.
Eyvi og Ólafía í búðinni sinni á Reykhólum.

„Já, jólatraffíkin er farin af stað. Það eru farnar að seljast bækur til gjafa og fólk er talsvert farið að kaupa konfekt, þannig að það er ljóst að jólaverslunin er komin í gang,“ segir Eyvindur Magnússon, sem rekur verslunina Hólakaup á Reykhólum ásamt Ólafíu Sigurvinsdóttur konu sinni. Þau hafa rekið búðina í þrjú og hálft ár en voru áður orðin þrautreynd í verslunarrekstri. Eyvindur var verslunarstjóri í Kaupfélagi Borgfirðinga í Borgarnesi í fimm ár og Ólafía verslunarstjóri hjá Kaupási / 11-11 í Reykjavík í sjö ár.

...
Meira
4. desember 2013

Dönsku vinirnir misstu sig

Forsetinn klippir á borðann með aðstoð félaganna Garðars Stefánssonar og Sørens Rosenkilde.
Forsetinn klippir á borðann með aðstoð félaganna Garðars Stefánssonar og Sørens Rosenkilde.

Garðar Stefánsson, framkvæmdastjóri saltvinnslunnar Norður & Co við höfnina á Reykhólum, segir í umfjöllun á vef Nýsköpunarmiðstöðvar að mikilvægt sé að nýsköpunarfyrirtæki á Íslandi nýti kosti þess hve fábyggt landið er. Að hans mati er uppbygging öflugs tengslanets lykilþáttur. Þar skipti ekki síst máli að tengja nýsköpunarfyrirtæki saman, en skrifstofa Norður & Co er í húsnæði Íslenska sjávarklasans í Reykjavík. Meðal hugmyndanna í þessu efni hafi verið að fá forseta Íslands til að opna saltvinnslu félagsins á Reykhólum.

...
Meira

Áætluð ferð Gámaþjónustu Vesturlands til að safna rúllubaggaplasti á bæjum frestaðist vegna veðurs. Í staðinn er ætlunin að fara um héraðið á morgun, fimmtudag, og safna plasti hjá þeim sem hafa skráð sig.

...
Meira
Ásta Sjöfn og Guðmundur.
Ásta Sjöfn og Guðmundur.
1 af 2

Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir á Litlu-Grund í Reykhólasveit hefur tekið við skólastjórn á Reykhólum í fæðingarorlofi Önnu Gretu Ólafsdóttur skólastjóra. Ásta Sjöfn byrjaði að kenna í Reykhólaskóla árið 1999 sem leiðbeinandi og gerði það þá í tvo vetur. „Í framhaldi af því tók ég þá ákvörðun að mig langaði til að verða kennari þegar ég yrði stór og fór í Kennaraháskólann. Ég flutti aftur vestur árið 2003 þó að ég væri ekki búin með skólann og fór að kenna á Reykhólum þá um haustið og hef starfað þar nánast samfellt síðan, með tveimur fæðingarorlofshléum. Vorið 2006 útskrifaðist ég sem grunnskólakennari,“ segir hún.

...
Meira

Badmintonæfingar hefjast í íþróttahúsinu á Reykhólum kl. 20.30 á morgun, miðvikudag, og verða hér eftir á miðvikudögum þar til annað verður auglýst. Allir eru velkomnir og ekkert gjald. Hrefna Hugosdóttir sér um æfingarnar. Svo er íþróttahúsið opið til badmintoniðkunar fyrir krakkana í 3.-10. bekk á miðvikudögum kl. 16.15 til 17.15. Jafnframt er hér auglýst eftir einhverjum áhugasömum til að sjá um skákklúbb og/eða spilaklúbb einu sinni í viku. Barmahlíð útvegar húsnæði á efri hæðinni. Að launum verður gleði og heitt kaffi.

...
Meira

Atburðadagatal

« J�n� 2025 »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30