Lukka úr Sviðnum - hleypt í Höskuldsey
Faðir minn var skemmtilegur frásagnarmaður. Oft fékk ég að vera nærstaddur þegar karlarnir komu saman og ræddu landsins gagn og nauðsynjar. Skemmtilegast þótti mér þegar sögumenn eins og Sveinn Gunnlaugsson, Sveinbjörn Guðmundsson og jafnvel Pétur sterki Einarsson sátu að skrafi við föður minn. Slík samtöl svo og lifandi frásagnir pabba og ömmu urðu þess valdandi, að mér finnst ég hafa þekkt nafngreindar persónur fyrri aldar eins vel og nágranna okkar úr hinum eyjunum. Þess vegna er þessi kafli úr sögu Lukku, sem fjallar um áhlaupsveður á Bjarneyjamiðum, lifandi í minni mínu vegna frásagnar hans. Mér fannst lengi líkt og ég hefði sjálfur verið viðstaddur.
...Meira